Kaupir Byr á 6,6 milljarða
Íslandsbanki mun kaupa 11,8% hlut íslenska ríkisins og 88,2% hlut skilanefndar Byrs á 6,6 milljarða kr. Alþingi hefur nú samþykkt sölu á hlut ríkisins í Byr hf. til Íslandsbanka og er allri samningagerð lokið.
Fram kemur í tilkynningu að nú sé ljóst að Íslandsbanki og Byr muni sameinast, en áður höfðu Fjármálaeftirlitið, Samkeppniseftirlitið og Eftirlitsstofnun EFTA veitt samþykki sitt fyrir kaupunum. Bankarnir tveir munu nú sameinast undir merkjum Íslandsbanka.
Þá segir að efnahagsreikningur sameinaðs banka verði um 814 milljarðar króna og eiginfjárhlutfall bankans, miðað við samrunareikning, sé vel yfir 20% en núverandi lágmarkskrafa Fjármálaeftirlitsins er 16%.
„Útibú bankans verða rekin áfram með óbreyttu sniði fyrst um sinn en gera má ráð fyrir að fyrsta sameining útibúa fari fram eftir áramót. Viðskiptavinir Byrs hf. geta áfram notað alla innlánsreikninga, greiðslukort og heimabanka eins og áður, sem og aðra þjónustu.
Stefnt er að því að sameiningarferlinu ljúki á fyrstu mánuðum næsta árs. Starfsmenn sameinaðs banka munu leggja áherslu á að vanda þá vinnu eins og mögulegt er í góðu samstarfi og samráði við helstu hagaðila, þ.á m. viðskiptavini, starfsmenn, sveitarfélög og félaga- og hagsmunasamtök.
Sameining Byrs og Íslandsbanka er liður í mikilvægri hagræðingu í fjármálakerfinu en stjórnvöld, eftirlitsaðilar og eigendur bankans hafa lagt áherslu á slíka hagræðingu. Áhersla verður lögð á að ganga með ábyrgum hætti til slíkra aðgerða og að eyða óvissu sem allra fyrst,“ segir í tilkynningu.
Birna Einarsdóttir, bankastjóri Íslandsbanka, segist í tilkynningunni fagna þessum tímamótum. „Sameining Íslandsbanka og Byrs þýðir að við erum orðin eitt öflugasta fjármálafyrirtæki á Íslandi. Í krafti stærðarinnar vonast ég eftir að við getum veitt viðskiptavinum okkar enn betri fjármálaþjónustu. Sameiningin hefur auk þess í för með sér ákveðna hagræðingu sem er afar mikilvægt skref í enduruppbyggingu íslenska fjármálakerfisins,“ segir hún.
Jón Finnbogason, forstjóri Byrs, segir að óvissutíma um framtíð Byrs sé nú lokið. Nú skapist tækifæri til að horfa til framtíðar og byggja upp sterkt og traust fjármálafyrirtæki.



















