Viðskipti
| mbl
| 25.11.2011
| 20:48
| Uppfært
21:04
Lánshæfismat Belgíu lækkað
Matsfyrirtækið Standard & Poor's lækkaði í dag lánshæfismat Belgíu úr AA+ í AA. Þessi ákvörðun gæti aukið lántökukostnað ríkissjóðs.
Að mati S&P hefur samdráttur í efnahagslífi Belgíu neikvæð áhrif á ríkisfjármál landsins. Halli sé á rekstri ríkissjóðs og skuldir hans miklar. Samdráttur í markaðslöndum Belgíu hafi einnig neikvæð áhrif á efnahag landsins.
S&P metur horfur í efnahagsmálum Belgíu neikvæðar sem getur leitt til þess að lánshæfismat landsins verði lækkað frekar.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















