Lykilstjórnendur Haga hafa eignast 1,4% hlut í félaginu
Lykilstjórnendur Haga, sem meðal annars eiga Bónus og Hagkaup, fá 1,4% hlut í félaginu samkvæmt samkomulagi sem þeir gerðu við Arion banka í febrúar á síðasta ári, segir Haraldur Guðni Eiðsson, forstöðumaður samskiptasviðs Arion banka, í samtali við Morgunblaðið í dag.
Samkomulagið fól í sér forkaupsrétt á allt að 5% hlut í Högum með afslætti. Í stað þess að efna forkaupsréttinn afhenti Eignarbjarg stjórnendunum 1,4% hlut í Högum sem nam þeim afslætti sem samið hafði verið um. Verðmæti hlutarins nemur um 170 milljónum króna en heildargreiðsla til þeirra nemur um 340 milljónum króna. Skattur er hins vegar greiddur af samkomulaginu og standa stjórnendur Haga því eftir með 170 milljón króna hlut í félaginu. Að sögn Haraldar er það Eignarbjarg, dótturfélag Arion banka, sem ber allan kostnaðinn af samkomulaginu.
Almennt útboð á hlutabréfum í Högum verður kynnt á næstu dögum. Í útboðinu mun almenningi og fagfjárfestum bjóðast að kaupa 20-30% af útgefnum hlut í smásölurisanum.



















