Viðskipti
| mbl
| 28.11.2011
| 9:53
| Uppfært
21:05
Ekki von á breytingu vaxta
Stýrivextir eru hæfilegir við núverandi efnahagsaðstæður og það þarf eitthvað mikið nýtt að koma til ef þeir eiga að hækka eða lækka á næstunni. Þetta sagði Már Guðmundsson seðlabankastjóri á opnum fundi efnahags- og viðskiptanefndar Alþingis nú í morgun.
Sagði seðlabankastjóri að ekki hefði átt að koma á óvart að stýrivextir hefðu verið hækkaðir í ágúst og aftur í nóvember, ekki síst þegar horft væri til verðbólguhorfa. Það hefði sýnt sig með hækkuninni í ágúst að hófleg mótspyrna gegn verðbólgu hefði ekki haft áhrif á efnahagsbatann á Íslandi.
Ef hagvaxtarspár rætist í framtíðinni muni þurfa að bregðast við þeim slaka með breytingum á vöxtum.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















