Viðskipti
| mbl
| 28.11.2011
| 9:29
| Uppfært
9:45
Vísitölur rjúka upp
Allar helstu hlutabréfavísitölur í Evrópu hafa hækkað mikið í morgun vegna væntinga um að staðan í evru-ríkjunum sé ekki jafn alvarleg og talið var.
Í Frankfurt hefur DAX-vísitalan hækkað um 3,2% og í Mílanó hefur FTSE-Mib-vísitalan hækkað um 3,40%. Í Madríd nemur hækkun Ibex-vísitölunnar 3,35%, í París hefur CAC-vísitalan hækkað um 2,90% og í Lundúnum hefur FTSE-vísitalan hækkað um 1,98%.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















