Facebook 12.000 milljarða virði?
Bandaríska netfyrirtækið Facebook Inc., sem rekur samnefndan samskiptavef, er sagt undirbúa skráningu á hlutafjármarkað þar sem 10 milljarðar dala af nýju hlutafé verði boðnir út.
Blaðið Wall Street Journal hefur eftir heimildarmönnum, að miðað við þetta gæti markaðsvirði Facebook verið allt að 100 milljarðar dala, 12.000 milljarðar króna.
Blaðið segir, að hugsanlega muni Facebook birta skráningarlýsingu fyrir lok ársins.
Í byrjun þessa árs keypti fjárfestingarbankinn Goldman Sachs Group og fleiri fjárfestar hlut í Facebook fyrir 1,5 milljarða dala. Samkvæmt þeim viðskiptum var markaðsverðmæti Facebook áætlað um 50 milljarðar dala á þessum tíma.
Yfir 800 milljónir notenda eru skráðir hjá Facebook en fyrirtækið hefur einnig í auknum mæli beint sjónum sínum að farsímatækni. Búast stjórnendur við, að næsti milljarður notenda Facebook muni einkum nota snjallsíma til að fara inn á netið.



















