Viðskipti
| mbl
| 29.11.2011
| 9:33
| Uppfært
10:15
Lánshæfismat Frakklands lækkað á næstunni?
Franska dagblaðið La Tribune heldur því fram að matsfyrirtækið Standard & Poor's muni á næstu dögum lækka lánshæfismat franska ríkisins, en það hefur nú hæstu einkunn, eða AAA. Mikil umræða hefur verið um það á undanförnum mánuðum að lánshæfismat Frakklands gæti verið í hættu.
Tilkynnt var um að Standard & Poor's hefði lækkaði lánshæfismat franska ríkisins 10. nóvember síðastliðinn en það reyndust vera mistök hjá fyrirtækinu og voru mistökin leiðrétt sama dag.
Fréttavefurinn Euobserver.com segir frá þessu í dag.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















