Skuldatryggingarálagið yfir 3%

Skuldatryggingarálag íslenska ríkisins stækka

Skuldatryggingarálag íslenska ríkisins Af vef Íslandsbanka

Skuldatryggingarálag á íslenska ríkið hefur hækkað nokkuð á síðustu vikum og náði sínu hæsta gildi á árinu á föstudaginn í síðustu viku þegar álagið stóð í 358 punktum (3,58%).  Í morgun hafði álagið hinsvegar lækkað aðeins síðan á föstudaginn og stóð í 342 punktum samkvæmt gögnum frá Bloomberg gagnaveitunni.

Til samanburðar var álagið komið niður í 280 punkta um miðjan október og hefur það því hækkað mikið síðustu vikurnar. Álagið er nú á svipuðum stað og það var fyrir ári síðan. Það sem veldur þessari hækkun er almenn hækkun á þessum markaði vegna skuldakreppunnar í Evrópu en ekki séríslenskir þættir, segir í Morgunkorni greiningar Íslandsbanka. 

„Í upphafi þessa árs var skuldatryggingarálag á ríkissjóð Íslands 255 punktar og hefur því hækkað um rétt tæplega 100 punkta síðan þá. Á sama tíma  hefur meðaltal Vestur-Evrópuríkja hækkað um tæplega 150 punkta og er nú 330 punktar.

Grikkland er tekið út úr þessum samanburði þar sem álagið á Grikkland stendur nú í 8.500 punktum og er langhæst af ríkjum Vestur Evrópu og þó víðar væri leitað, og er varla samanburðarhæft á því stigi.

Álagið á Ítalíu stendur nú í 525 punktum en var 444 punktar fyrir rúmum mánuði síðan, álagið á Spán er 448 punktar en var 380 punktar um miðjan októbermánuð. Meira að segja álagið á skuldatryggingar ríkissjóðs Þýskalands hefur farið hækkandi nú síðustu vikur, en álagið hefur um mjög langa hríð verið stöðugt á milli 40 og 60 punkta. Síðastliðinn föstudag fór álagið á Þýskaland hinsvegar upp fyrir 120 punkta en er nú 107 punktar. Af þessu má sjá að áhyggjur markaða af skuldavandanum í Evrópu fara nú versnandi og samhliða því er áhættufælni að stigmagnast," segir í Morgunkorni greiningar Íslandsbanka. 

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Viðskipti »

Skuldakreppan á borð G20

19:54 Fjármálaráðherrar G-20 ríkjanna (20 helstu iðnríkja heims) og seðlabankastjórar munu koma saman á fundi í Mexíkóborg um helgina og ræða skuldakreppuna á evrusvæðinu. Meira »
Lestur blaða hefur að miklu leyti færst yfir í rafrænt form.

Gannett rukkar fyrir lestur á netinu

19:29 Gannett, stærsta dagblaðaútgáfa Bandaríkjanna, ætlar að krefja lesendur dagblaða í eigu útgáfunnar fyrir lestur á fréttum blaðanna á netinu. Um áttatíu dagblöð eru í eigu Gannett og þarf að greiða fyrir lestur þeirra allra fyrir utan USA Today. Meira »

Skapar 20.600 störf

18:48 Efnahagslegur ábati af flugtengdri starfsemi á Íslandi er margháttaður. Þannig skapar atvinnugreinin alls um 20.600 störf og þjóðhagsleg áhrif á verga landsframleiðslu eru kringum 12,9%. Meira »

Valitor fær aðgang að upplýsingum

16:40 Hæstiréttur hefur staðfest dóm Héraðsdóms Reykjavíkur sem felldi úr gildi úrskurð áfrýjunarnefndar samkeppnismála um að neita Valitor um aðgang að upplýsingum um nöfn og verð í kvörtun Borgunar hf. Meira »

Afleit afkoma RBS

Royal Bank of Scotland (RBS)
15:32 Tap breska bankans Royal Bank of Scotland nam 1,99 milljörðum punda, 389,40 milljörðum króna, á síðasta ári.   Meira »

Vinnumarkaður að rétta úr kútnum

Atvinnuleysi fer minnkandi í Bandaríkjunum
15:25 Litlar breytingar urðu á nýjum umsóknum um atvinnuleysisbótum í Bandaríkjunum í síðustu viku og bendir allt til þess að vinnumarkaðurinn sé hægt og bítandi að rétta úr kútnum þar í landi. Meira »

Niðurfærsla samþykkt

Gríðarleg óánægja er með fyrirhugaðan niðurskurð í Grikklandi og mótmæli daglegt brauð við þinghúsið í ...
16:55 Gríska þingið samþykkti í dag frumvarp til laga um að heimila niðurfærslu 107 milljarða evra af skuldum ríkissjóðs hjá bönkum og fjármálastofnunum. Meira »

Viðskiptavinir Nova ánægðastir

Fulltrúar fyrirtækja sem mældust hæst í Íslensku ánægjuvoginni.
15:49 Viðskiptavinir Nova eru ánægðastir samkvæmt Íslensku ánægjuvoginni 2011. Fékk fyrirtækið 73,3 stig af 100 möguleikum í mælingunni. Í fyrsta sæti í flokki banka er Íslandsbanki og í flokki tryggingafélaga er Tryggingamiðstöðin með hæstu einkunnina. Meira »

Færir Advania forystu?

Hlutabréf lækka en evran hækkar

Frá kauphöllinni í Frankfurt í dag
15:30 Hlutabréfavísitölur í Evrópu og Bandaríkjunum hafa lækkað í dag en evran hefur styrkst gagnvart Bandaríkjadal.   Meira »

Rammagerðin opnar verslun á Akureyri

Lovísa Óladóttir framkvæmdastjóri og Halla Sigbjörnsdóttir verslunarstjóri.
15:03 Gjafavöruverslunin Rammagerðin opnaði í dag, 23. febrúar, nýja verslun á Akureyri. Verslunin er í endurgerðu húsi, Hamborg, að Hafnarstræti 94 á Akureyri. Meira »

Ekki spurning um hvort heldur hvenær

Seðlabanki Íslands
14:40 Greiningardeild Arion banka telur að stutt sé í næstu vaxtahækkun Seðlabanka Íslands en í fundargerð peningastefnunefndar frá síðustu vaxtaákvörðun þann 8. febrúar kemur fram að tveir af fimm nefndarmönnum töldu að hækka ætti vexti. Meira »

Norska krónan styrkist enn

Norskar krónur.
15:07 Norska krónan hefur verið að styrkjast síðustu misseri og hefur ekki verið sterkari gagnvart evru í níu ár.  Meira »

Ný efnahagslægð á leiðinni

Olli Rehn.
14:59 Skuldakreppan á evru-svæðinu mun draga svæðið niður í nýja efnahagslægð í ár, líkt og lengi hefur verið spáð. Flest nágrannaríkin, sem ekki eru með evruna, munu fara sömu leið, samkvæmt nýrri spá Evrópusambandsins. Meira »

Marel greiðir 6,9 milljónir evra í arð

Marel
14:36 Stjórn Marels leggur til að greiddur verði út arður til hluthafa vegna reikningsársins 2011 sem nemur 0,95 evru sentum á hlut, en slík arðgreiðsla samsvarar u.þ.b. 20% af hagnaði ársins. Fyrirhuguð heildararðgreiðsla nemur um 6,9 milljónum evra, 1.144 milljónir króna. Meira »

Svipaðar fréttir

Mynt Fjárhæð Mynt Fjárhæð
ISK -   ISK USD - Bandaríkjadalur  USD
EUR - Evra  EUR GBP - Sterlingspund  GBP
CAD - Kanadadalur  CAD DKK - Dönsk króna  DKK
NOK - Norsk króna  NOK SEK - Sænsk króna  SEK
CHF - Svissneskur franki  CHF JPY - Japanskt jen  JPY
Gengi gjaldmiðla

Guðmundur um markaðsmál

mynd Ogilvy um prentauglýsingar.
David Ogilvy er oft kallaður faðir nútíma auglýsingamennsku. Hér verða skoðanir hans á því hvernig hægt er að ná hámarks árangri með prentauglýsingum Meira

finnur.is

Erlendar viðskiptafréttir