Gætu hagnast vel
Eignarhaldsfélagið Búvellir, sem keypti 44% hlut í Högum fyrr á þessu ári, gæti hagnast vel á annan milljarð króna ef mat IFS Greiningar um að verð á hlut í Högum ætti að vera 13 krónur reynist nærri lagi.
Hlutafjárútboð Haga fer fram næstkomandi mánudag og hefur seljandinn, Eignabjarg, dótturfélag Arion banka, óskað eftir áskriftum á verðbilinu 11-13,5 krónur á hlut.
Hópur fagfjárfesta og lífeyrissjóða, gegnum félagið Búvelli, festi kaup á 34% af hlutum Haga í febrúar á þessu ári á genginu 10 og nam kaupverðið 4,1 milljarði króna. Að auki var samið um kauprétt á 10% hlut til viðbótar á genginu 11, sem Búvellir nýttu sér í byrjun nóvember og greiddu þeir 1,3 milljarða fyrir hlutinn. Samtals hefur félagið því greitt 5,4 milljarða króna fyrir 44% hlut í Högum.
Eftir hlutafjárútboð Haga gæti markaðsverðmæti 44% hlutar Búvalla í félaginu numið hátt í 7 milljörðum króna. Samkvæmt þessum forsendum hefur fjárfesting Búvalla skilað félaginu ríkulegri ávöxtun og verðmæti eignarhlutarins aukist um ríflega 1,5 milljarða króna á árinu – úr 5,4 milljörðum í 6,9 milljarða króna.



















