Óbreyttir stýrivextir
Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að halda vöxtum bankans óbreyttum. Er þetta í takt við væntingar greiningardeilda sem gáfu út spár sínar nýverið.
Í yfirlýsingu frá peningastefnunefnd kemur fram að nýjustu hagtölur eru í meginatriðum í takt við spá Seðlabankans, sem birt var í nóvemberhefti Peningamála. Efnahagsbatinn hefur haldið áfram, þrátt fyrir að það dragi úr hagvexti í heiminum og óvissa hafi aukist. Verðbólga er enn fyrir ofan verðbólgumarkmið Seðlabankans en nýleg þróun bendir til þess að því verði náð á næstu misserum.
„Veruleg óvissa ríkir um þann feril nafnvaxta sem þarf til þess að ná verðbólgumarkmiðinu. Í ljósi efnahagshorfa og hugsanlega óhagstæðrar alþjóðlegrar efnahagsþróunar virðist núverandi vaxtastig um það bil við hæfi á komandi mánuðum. Horft lengra fram á veginn verður hins vegar nauðsynlegt að draga úr núverandi slaka peningastefnunnar eftir því sem efnahagsbatanum vindur fram og dregur úr slaka í þjóðarbúskapnum. Að hve miklu leyti þessi aðlögun á sér stað með hærri nafnvöxtum fer eftir framvindu verðbólgunnar,“ segir í yfirlýsingunni.
Már Guðmundsson, seðlabankastjóri, sagði á fundi með efnahags- og viðskiptanefnd Alþingis þann 28. nóvember sl. að stýrivextir séu hæfilegir við núverandi efnahagsaðstæður og það þarf eitthvað mikið nýtt að koma til ef þeir eiga að hækka eða lækka á næstunni.
Sagði seðlabankastjóri að ekki hefði átt að koma á óvart að stýrivextir hefðu verið hækkaðir í ágúst og aftur í nóvember, ekki síst þegar horft væri til verðbólguhorfa. Það hefði sýnt sig með hækkuninni í ágúst að hófleg mótspyrna gegn verðbólgu hefði ekki haft áhrif á efnahagsbatann á Íslandi.
Vextir á viðskiptareikningum innlánsstofnana eru því 3,5%, hámarksvextir á 28 daga innstæðubréfum 4,50%, vextir á lánum gegn veði til sjö daga 4,75%, svonefndir stýrivextir, og daglánavextir 5,75%.



















