Stuttur og tíðindalítill fundur
Greining Íslandsbanka segir að óhætt sé að segja að vaxtaákvörðun Seðlabanka Íslands í morgun hafi verið mjög tíðindalítil miðað við oft áður og var fundurinn, sem að venju er haldinn í kjölfar vaxtaákvörðunar, afar stuttur.
„Skýringin á þessu er líklega sú að það er ekki nema rétt rúmur mánuður frá því að síðasta vaxtaákvörðun var, hinn 2. nóvember, og þá er aðeins rétt rúm vika síðan seðlabankastjóri ásamt fleiri forsvarsmönnum Seðlabankans kom fram á opnum fundi efnahags- og viðskiptanefndar Alþingis til að ræða peningamálastefnuna.
Á fundinum í morgun sagði Már Guðmundsson seðlabankastjóri að nýjustu hagtölur sem Hagstofan hefði birt í morgun væru í meginatriðum í takt við spár bankans og sýndu það að efnahagsbatinn héldi áfram og gæti reyndar orðið öllu meiri í ár en spár bankans gera ráð fyrir.
Þá sagði Már að tölurnar frá því í morgun hefðu sýnt að hóflegar vaxtahækkanir bankans á seinni helmingi ársins hefðu ekki slegið batann út af laginu. Þau ummæli eru raunar athyglisverð í ljósi þess að bankinn hóf ekki að hækka vexti fyrr en rúmur mánuður var eftir af því tímabili sem Hagstofan birti þjóðhagsreikninga fyrir í morgun,“ segir í Morgunkorni greiningar Íslandsbanka.



















