Viðskipti
| AFP
| 8.12.2011
| 21:38
| Uppfært
22:48
Draghi dró niður markaði
Bandarískar hlutabréfavísitölur lækkuðu töluvert í kvöld eftir að Seðlabanki Evrópu gerði út um væntingar markaðarins um að bankinn myndi auka kaup á ríkisskuldabréfum til þess að styðja við bakið á illa stöddum evruríkjum.
Dow Jones-vísitalan lækkaði um 1,60% og er rúm 12 þúsund stig. Nasdaq lækkaði um 1,98% og S&P 500-hlutabréfavísitalan lækkaði um 2,09%.
Fyrr í dag lækkaði Seðlabanki Evrópu stýrivexti sína í 1% og hafa þeir aldrei verið lægri. Þegar tilkynnt var um vaxtalækkunina sagði Mario Draghi, seðlabankastjóri Evrópu, að ríkisstjórnir yrðu að gera sitt ýtrasta til þess að bjarga kreppunni og endurvekja traust á evrunni. Ákvarðanir þar að lútandi væru í höndum leiðtoganna.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















