Um þrjú þúsund boð bárust
Um þrjú þúsund boð bárust í almennu útboði á hlutabréfum í Högum og nam heildarfjárhæð tilboðanna um 40 milljörðum króna. Vegna mikillar eftirspurnar í útboðinu er ljóst að hver aðili fær aðeins hluta síns tilboðs samþykktan en til stóð að selja 20-30% af heildarhlutafé Haga.
Mikil eftirspurn var eftir hlutabréfum Haga í almennu útboði á hlutabréfum í félaginu sem stóð yfir frá mánudegi til fimmtudags í umsjón Fyrirtækjaráðgjafar Arion banka. Bæði almenningi og fagfjárfestum var gefinn kostur á að skrá sig fyrir samtals 20-30% af útgefnum hlutum í félaginu, segir í tilkynningu frá Arion banka.
„Ljóst er að markmið seljandans um að útboðið marki grunninn að dreifðu eignarhaldi almennings og fagfjárfesta á Högum, auk þess að fá ásættanlegt verð fyrir eign sína, hefur náðst með útboðinu. Ákvörðun seljanda um endanlega stærð útboðs, verð, skiptingu og úthlutun mun liggja fyrir föstudaginn 9. desember. Seljandi hlutabréfanna er Eignabjarg ehf., dótturfélag Arion banka,“ segir í tilkynningu.



















