Viðskipti
| AFP
| 19.12.2011
| 8:37
| Uppfært
21:38
Etihad eignast 29% í Air Berlin
Flugfélagið Etihad Airways, sem er í eigu Sameinuðu arabísku furstadæmanna á orðið 29,21% í næst stærsta flugfélagi Þýskalands, Air Berlin. Er Etihad er því stærsti hluthafinn í Air Berlin en félagið hefur átt í talsverðum fjárhagserfiðleikum. Mun Etihad leggja félaginu til 255 milljónir Bandaríkjadala.
Etihad átti fyrir 2,99% hlut í Air Berlin en eykur nú hlut sinn um 27,03% með útgáfu nýrra hlutabréfa.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















