Viðskipti
| AFP
| 19.12.2011
| 14:24
Hefur áhrif á allan heiminn
Framkvæmdastjóri Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, Christine Lagarde, segir að skuldakreppan í Evrópu sé hættuleg öllum hagkerfum heimsins. Þetta kom fram í máli hennar í heimsókn hennar á þing Nígeríu í dag.
Það sem sé að gerast í þróuðum hagkerfum, einkum og sér í lagi Evrópu, skipti alla í heiminum í dag máli.
Lagarde segir að fátækari ríki heims, einkum og sér í lagi þau sem treysta á viðskipti við Evrópu og fjárfestingar eigi að undirbúa sig undir erfiða tíma svo þau standi af sér storminn.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















