Markaðir á uppleið
Evrópskar hlutabréfavísitölur hafa leitað upp á við eftir lækkun fyrst í morgun. Hið sama á við um evruna sem hefur hækkað á ný.
Hefur FTSE vísitalan í Lundúnum hækkað um 0,11%, DAX vísitalan hefur hækkað um 0,68% í Frankfurt og CAC vísitalan hefur hækkað um 0,43%.
Eru það einkum lyfjafyrirtæki og tóbaksfyrirtæki sem hafa hækkað í kauphöllinni í Lundúnum.
Þrátt fyrir að evran hafi hækkað aðeins á ný er hún enn lægri gagnvart Bandaríkjadal heldur en seint á föstudagskvöldið. Viðskipti voru með evruna á genginu 1,3010 dali skömmu fyrir hádegi.
Horfurnar fyrir lánshæfismat evruríkjanna halda áfram að versna en Fitch Ratings setti á föstudag lánshæfismat 6 evruríkja á athugunarlista með neikvæðum vísbendingum auk þess sem lánshæfismat Frakklands var sett á neikvæðar horfur. Þar með fetar Fitch í fótspor Standard & Poor's sem setti lánshæfiseinkunnir 15 evruríkja á athugunarlista með neikvæðum vísbendingum tveimur dögum áður en leiðtogafundur Evrópusambandsins hófst þann 8. desember sl.
S&P sögðu að þeir myndu kynna niðurstöðu sína eins fljótt og auðið væri eftir að leiðtogafundinum lyki. Nú tíu dögum síðar hefur ekkert heyrst frá S&P. Óhætt er því að segja að dómur matsfyrirtækjanna hangi nú yfir evrusvæðinu eins og Damóklesarsverð, en Fitch segist ætla að kveða upp sinn dóm fyrir janúarlok hvað varðar ríkin sex sem voru sett á athugunarlista en það eru; Belgía, Kýpur, Írland, Ítalía, Slóvenía og Spánn. Fitch segir hinsvegar að lækkun lánshæfiseinkunnar Frakklands sé ekki yfirvofandi en gæti þó komið til innan tveggja ára, segir í Morgunkorni greiningar Íslandsbanka.



















