Sammála um óbreytta vexti
Peningastefnunefnd Seðlabankans samþykkti samhljóða tillögu Más Guðmundssonar seðlabankastjóra um óbreytta stýrivexti vegna vaxtaákvörðunar bankans 7. desember sl. Fundargerð nefndarinnar hefur verið birt á vef Seðlabankans.
Í peningastefnunefnd sitja, auk Más, Arnór Sighvatsson aðstoðarseðlabankastjóri, Þórarinn G. Pétursson aðalhagfræðingur, Anne Sibert prófessor og Gylfi Zoëga prófessor. Að auki sátu fjölmargir starfsmenn Seðlabankans fundi nefndarinnar, sem haldnir voru 1. og 6. desember sl.
Voru vextirnir sem sagt óbreyttir, eða 3,75% á innlánum, 4,5% hámarksvextir á 28 daga innstæðubréfum, 4,75% vextir af lánum gegn veði til sjö daga og 5,75% daglánavextir.
Samkvæmt fundargerðinni ræddu nefndarmenn m.a. ný gögn um þjóðarbúskapinn sem höfðu komið fram frá síðasta fundi. Voru þeir sammála um að þau væru í meginatriðum í takti við spá Seðlabankans sem birt var í nóvemberhefti Peningamála. Hagtölur sýndu að efnahagsbatinn á Íslandi hefði haldið áfram þrátt fyrir að drægi úr hagvexti í heiminum og óvissa hefði aukist.
Í umræðum nefndarmanna kom einnig fram að þótt niðurstöður verðbólgumælinga að undanförnu hefðu verið heldur betri en búist hefði verið við, þá væri verðbólga enn fyrir ofan markmið Seðlabankans. Þróun að undanförnu benti þó til þess að verðbólga færðist aftur að markmiðinu á næstu misserum.
„Nefndarmenn kváðust þeirrar skoðunar að núverandi vaxtastig virtist um það bil við hæfi á komandi mánuðum í ljósi efnahagshorfa og hugsanlega óhagstæðrar alþjóðlegrar efnahagsþróunar. Væri horft lengra fram á veginn yrði hins vegar að mati nefndarmanna nauðsynlegt að draga úr núverandi slaka peningastefnunnar eftir því sem efnahagsbatanum vindur fram og dregur úr slaka í þjóðarbúskapnum. Að hve miklu leyti þessi aðlögun ætti sér stað með hærri nafnvöxtum færi þó eftir framvindu verðbólgunnar,“ segir m.a. í fundargerð peningastefnunefndar.



















