Velta kostnaðarhækkunum yfir á neytendur

Greiningardeild Arion banka segir, að erfitt sé að gera sér fyllilega grein fyrir því hvað valdi jafn mikilli hækkun á mat og drykkjarvörum nú og raun beri vitni. En væntanlega séu kaupmenn að nýta jólamánuðinn til að velta kostnaðarhækkunum fyrr á árinu yfir á neytendur.

Samkvæmt upplýsingum frá Hagstofunni í morgun hækkaði verð á mat og drykkjarvöru   um 1,7% milli nóvember og desember.

Arion banki segir, að uppsöfnuð þörf innlendra framleiðenda til að velta hrávöruhækkunum yfir á neytendur kunni að skýra það mikla stökk sem nú verði í matarliðnum í desembermánuði. Framleiðendur virðist eiga auðveldara með að hækka verð sín yfir hátíðirnar og neytendur setji verðhækkanir eflaust síður fyrir sig þegar kaupa á í jólamatinn.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK