Gagnrýna S&P harðlega
Ungversk stjórnvöld eru afar ósátt við þá ákvörðun matsfyrirtækisins Standard & Poor's að setja ungverska ríkið í ruslflokk.
Einkunn fyrir bæði langtíma- og skammtímaskuldbindingar var lækkuð úr BBB-/A-3 í BB+/B.
Í tilkynningu frá efnahagsráðuneytinu kemur fram að augljóst sé að ákvörðun S&P í gær, en í síðasta mánuði lækkaði Moody's lánshæfiseinkunn Ungverjalands, byggði ekki á raunhæfu mati á hagkerfi Ungverjalands og fjármálakerfi landsins.
Telur ríkisstjórn Ungverjalands að lækkunin byggi á þrýstingi frá markaðsaðilum sem vilja styrkja Bandaríkjadal á kostnað evru-svæðisins. Ungverjaland er í Evrópusambandinu en ekki í myntbandalagi Evrópu.
Meðal þess sem S&P gagnrýnir eru áætlanir ríkisstjórnar Ungverjalands um umbætur í fjármálakerfinu, meðal annars á að gera breytingar á seðlabanka landsins. Telur matsfyrirtækið að með því vakni spurningar um sjálfstæði stofnana og það umhverfi sem fjárfestar búa við.
Gengi flórintunnar hefur lækkað mikið að undanförnu og á þriðjudag hækkaði Seðlabanki Ungverjalands stýrivexti í 7%.



















