75 fasteignir seldar fyrir 3,4 milljarða
Alls var 75 kaupsamningum þinglýst á höfuðborgarsvæðinu dagana 23. desember til og með 29. desember sl. Þar af voru 55 samningar um eignir í fjölbýli, 12 samningar um sérbýli og átta samningar um annars konar eignir en íbúðarhúsnæði.
Heildarveltan var 3.434 milljónir króna og meðalupphæð á samning 45,8 milljónir króna, að því er þjóðskrá greinir frá.
Þar segir að á sama tíma hafi tveimur kaupsamningum verið þinglýst á Suðurnesjum. Annar þeirra hafi verið um eign í fjölbýli en hinn um sérbýli. Heildarveltan var 44 milljónir króna og meðalupphæð á samning 22 milljónir króna.
Á sama tíma var þremur kaupsamningum þinglýst á Akureyri. Þeir voru allir um eignir í fjölbýli. Heildarveltan var 54 milljónir króna og meðalupphæð á samning 17,8 milljónir króna.
Á sama tíma var sex kaupsamningum þinglýst á Árborgarsvæðinu. Þar af voru tveir samningar um eignir í fjölbýli og fjórir um sérbýli. Heildarveltan var 116 milljónir króna og meðalupphæð á samning 19,4 milljónir króna.



















