Ríkið ætlar að efna til nýs skuldabréfaútboðs
Stefnt er að því að ríkissjóður efni til annars skuldabréfaútboðs erlendis á árinu í kjölfar vel heppnaðs útboðs í júní sl. Þá ákváðu fjármálaráðuneytið og Seðlabankinn í lok síðasta árs að taka öll þau lán, sem Norðurlöndin lofuðu.
Fram kemur á vef fjármálaráðuneytisins að samkvæmt upphaflegri áætlun hafi staðið til að ríkissjóður og Seðlabankinn hefðu dregið að fullu á lán Norðurlandanna og Póllands fyrir árslok 2010, en vegna ítrekaðra seinkana á endurskoðun áætlunarinnar í stjórn AGS var frestur til að draga á lánin lengdur til ársloka 2011.
Fjármálaráðuneytið og Seðlabankinn ákváðu í árslok 2011 að draga að fullu á lán Norðurlandanna. Var það talið varlegt í ljósi núverandi aðstæðna, m.a. þar sem horfur á alþjóðlegum lánamörkuðum eru óvissar um þessar mundir.
Alls nema lán Norðurlandanna til Íslands 887,5 milljónum evra eða sem svarar um 140 milljarða íslenskra króna. Samið hefur verið um að fresta að draga á lán Póllands.
Við þetta hækka heildarskuldir ríkissjóðs um u.þ.b. 7% af vergri landsframleiðslu og neikvæður vaxtajöfnuður vex. Hrein skuldastaða ríkissjóðs breytist hins vegar ekki.
Alls nam umsamin lánafyrirgreiðsla Norðurlandanna og Póllands til Íslands í tengslum við efnahagsáætlun stjórnvalda 1.930 milljónum evra.



















