Viðskipti
| Morgunblaðið
| 5.1.2012
| 5:30
Bankakerfið minnkar en FME stækkar
Íslenska fjármálaeftirlitið hefur vaxið gríðarlega á síðustu þremur árum á sama tíma og bankakerfið hefur snarminnkað.
Í umfjöllun um þetta mál í viðskiptablaði Morgunblaðsins í dag kemur fram, að rekstrarkostnaður hefur aukist um meira en 70% og starfsmönnum fjölgað um helming.
Gunnar Andersen, forstjóri FME, segir aukið umfang stofnunarinnar eiga sér eðlilegar ástæður.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















