Viðskipti
| AFP
| 5.1.2012
| 21:23
Litlar breytingar á Wall Street
Litlar breytingar urðu á bandarískum hlutabréfavísitölum í dag en þær höfðu lækkað fyrr í dag. Eru umskiptin einkum rakin til bata á bandarískum vinnumarkaði í desember.
S&P 500-vísitalan hækkaði um 0,29% og Nasdaq hækkaði um 0,81%. Hins vegar lækkaði Dow Jones-vísitalan lítillega eða um 0,02%.
Hlutabréf Bank of America hækkuðu um 8,6% vegna orðróms um að aðgerðir stjórnvalda á húsnæðismarkaði geti unnið á móti íbúðalánum sem bankinn þyrfti að afskrifa að öðrum kosti.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















