Penninn boðinn til sölu
Ákveðið hefur verið að bjóða til sölu allt hlutafé í Pennanum á Íslandi ehf. sem er í eigu Eignabjargs ehf., dótturfélags Arion banka hf.
Verslanir Pennans eru Eymundsson, Penninn, Grifill og Islandia. Hjá fyrirtækinu starfa um 300 manns og er velta félagsins um fimm milljarðar króna.
Að sögn Arion banka er allt hlutafé Pennans á Íslandi boðið til sölu í einu lagi. Söluferlið er aðeins opið hæfum fjárfestum sem að mati seljanda geta sýnt fram á til þess bæran fjárhagslegan styrk eða aðgang að a.m.k. 300 milljónum króna í auðseljanlegum eignum.
Áskilur bankinn sér þó rétt til þess að takmarka aðgang að söluferlinu, meðal annars ef fyrir hendi eru lagalegar hindranir á því að viðkomandi fjárfestir eignist ráðandi hlut í félaginu, svo sem vegna samkeppnisreglna.



















