90 milljarða velta
Veltan á millibankamarkaði með gjaldeyri var á síðasta ári tæpir 90 milljarðar króna. Er það mun meiri velta en verið hefur undanfarin ár þó að enn sé þetta óravegu frá því að vera sú velta sem hér sást á árum áður, áður en hrunið og gjaldeyrishöftin tóku við.
Þannig er um að ræða aukningu um 99% frá fyrra ári þegar veltan nam 45 milljörðum króna, samkvæmt Morgunkorni Greiningar Íslandsbanka.
Seðlabankinn með 14% veltunnar
Viðskipti Seðlabankans námu 14% af heildarveltu síðasta árs eða 12,6 mö.kr. Þessi hlutdeild Seðlabankans er mun minni en árið 2012 þegar velta Seðlabankans nam 66% af heildarveltunni á gjaldeyrismarkaði.
„Þar ber þó að hafa í huga að stór hluti þeirrar veltu var vegna stakra gjaldeyriskaupa Seðlabankans af bönkunum í lok þess árs. Þessi aukning á veltu á millibankamarkaði er til vitnis um aukna virkni gjaldeyrismarkaðar, en segja má að virkni hans hafi náð algeru lágmarki árið 2010," segir í Morgunkorni.
Árið 2008 var veltan 7.500 milljarðar króna
Þrátt fyrir að veltan á gjaldeyrismarkaði sé að aukast er hún enn aðeins brotabrot af því sem hún var áður. Fyrir tíma gjaldeyrishafta var veltan á gjaldeyrismarkaði nærri áttatíuföld það sem hún er nú, en árið 2008 var veltan 7.500 milljarðar króna.
„Til þess að aukning verði að ráði í viðskiptum á þessum markaði þarf að slaka á höftunum en það verkefni gengur hægt, og í raun mun hægar en menn óraði fyrir þegar höftin voru sett á í lok árs 2008. Þá var stefnt að því að höftin yrðu afnumin samhliða því sem efnahagsáætlun Alþjóðagjaldeyrissjóðsins og íslenskra stjórnvalda myndi ljúka. Ísland var hinsvegar útskrifað frá AGS síðastliðið haust en höftin sýna enn á sér lítið fararsnið. Þau skref sem tekin voru á árinu í átt að afnámi voru bæði færri og minni en vonir höfðu staðið til og reyndar virðist það nú vera viðtekin skoðun að krónan verði í skjóli gjaldeyrishafta enn um sinn," segir í Morgunkorni.



















