Bankabónus vekur athygli
Framkvæmdastjóri hjá breska bankanum Royal Bank of Scotland (RBS), sem breska ríkið á 83% hlut í, fær fjórar milljónir punda, 767 milljónir króna, í bónusgreiðslur í ár. Virðist litlu skipta að forsætisráðherra Bretlands, David Cameron, hafi heitið því að berjast gegn slíkum ofurbónusgreiðslum.
John Hourican, sem stýrir fjárfestingabankasviði RBS, fær greiddan sérstakan kaupauka í apríl sem tengist yfirtöku bankans á hollenska bankanum ABN Amro árið 2007, samkvæmt fréttum Financial Times og Daily Telegraph í dag.
Talsmaður RBS segir hins vegar í samtali við Sky-sjónvarpsstöðina að ekki sé búið að taka ákvörðun um hvort bónusinn verði greiddur.
John Hourican hefur stýrt fjárfestingabankasviði RBS frá árinu 2008 en hann var fjármálastjóri ABN Amro áður en hann kom til starfa hjá RBS.
Yfirtakan á ABN Amro er ein helsta skýringin á því að bjarga þurfti RBS-bankanum frá falli. En RBS greiddi 71,1 milljarð evra fyrir ABN Amro.



















