Beitir lífeyrissjóð dagsektum
Fjármálaeftirlitið hefur ákveðið að leggja dagsektir á Stapa lífeyrissjóð til að knýja á um að sjóðurinn geri tilteknar breytingar á hýsingarsamningi um rekstur upplýsingakerfa.
Fram kemur á vef Fjármálaeftirlitsins, að þar sem lífeyrissjóðurinn hafi ekki orðið við ítrekuðum kröfum Fjármálaeftirlitsins um úrbætur hafi stjórn stofnunarinnar ákveðið að leggja 200 þúsund króna dagsektir á lífeyrissjóðinn.
Krafa Fjármálaeftirlitsins um úrbætur laut að aðgangi Fjármálaeftirlitsins að upplýsingum frá hýsingaraðila og að athuganir, sem stofnunin teldi vera nauðsynlegan lið í eftirliti með því sem úthýst væri, gætu farið fram á vinnustöð hýsingaraðila. Krafan laut einnig að skyldu hýsingaraðila til að halda skrá yfir utanaðkomandi aðila sem hefðu aðgang að tölvukerfinu.



















