Ítalía veldur mestum áhyggjum

Mario Monti forsætisráðherra Ítalíu
Mario Monti forsætisráðherra Ítalíu Reuters

Ítalía er það ríki innan evrusvæðisins sem veldur matsfyrirtækjum mestum áhyggjum vegna mikilla skulda ríkissjóðs. Fitch Ratings útilokar ekki að lánshæfiseinkunn Ítalíu verði lækkuð fyrir lok janúarmánaðar.

Þetta kom fram í máli Davids Rileys, framkvæmdastjóra hjá Fitch, á blaðamannafundi í dag.

Hann varar einnig við því að ekki sé loku fyrir það skotið að Grikkland yfirgefi evrusvæðið í ár.

Riley segir að ástandið í ríkisfjármálum Ítalíu sé eldfimt en ríkissjóður þurfi að útvega sér gríðarlega mikið lánsfé á næstu mánuðum. Ítalía er nú með einkunnina A+ hjá Fitch.

Í síðasta mánuði varaði Fitch við því að sex ríki á evrusvæðinu, Spánn, Ítalía, Belgía, Slóvenía, Kýpur og Írland, ættu það á hættu að lánshæfiseinkunn þeirra yrði lækkuð.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK