Viðskipti
| AFP
| 10.1.2012
| 10:41
Lánshæfi Frakklands ekki í hættu
Alþjóðlega matsfyrirtækið Fitch mun ekki lækka lánshæfiseinkunn franska ríkisins í ár nema landið verði fyrir verulegu efnahagslegu áfalli. Frakkland er með hæstu einkunn hjá Fitch, AAA.
Að sögn talskonu Fitch eru litlar sem engar líkur á því að lánshæfiseinkunn Frakklands lækki í ár og hafa spár fyrirtækisins um horfur í Frakklandi fyrir árið í heild ekki breyst.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















