Áforma að fækka starfsfólki
Gert er ráð fyrir að starfsmönnum í ferðaþjónustu fjölgi. mbl.is
Samtök atvinnulífsins segja, að ætla megi af svörum stjórnenda 400 stærstu fyrirtækja landsins í nýrri könnun, að starfsmönnum þeirra muni fækka um 100-200 á næstu sex mánuðum, eða um 0,3-0,7%.
Capacent gerði könnunina fyrir Samtök atvinnulífsins (SA) og Seðlabankann. SA segir á vef sínum, að tæplega 30 þúsund starfsmenn starfi hjá fyrirtækjunum, sem tóku þátt í könnuninni.
Langflestir stjórnendanna, eða þrír af hverjum fimm, búist við óbreyttum starfsmannafjölda á næstu sex mánuðum, 17% áformi að fjölga starfsmönnum en 25% búist við fækkun.
Fjölgun starfsmanna er áformuð í sérhæfðri þjónustu, samgöngum og ferðaþjónustu. Fyrirtæki í verslun búist við óbreyttum fjölda í verslun, aðrar atvinnugreinar gera ráð fyrir fækkun.



















