Asda hætt við sér tilboð í Iceland
Breska smásölukeðjan Asda Group er hætt við að bjóða í alla Iceland Food-keðjuna og er í viðræðum við fjárfestingarfélög um að sameinast um tilboð, samkvæmt frétt á vef Wall Street Journal.
Skilanefndir Landsbankans og Glitnis hafa boðið Iceland Food-keðjuna til sölu en þrotabú bankanna eiga 77% hlut í Iceland Food. 23% eru í eigu forstjóra Iceland Food og annarra starfsmanna.
Asda er í eigu stærstu smásölukeðju heims, Wal-Mart. Samkvæmt frétt WSJ hefur Asda áhuga á að eignast um 200 af 796 verslunum Iceland Food og er það í takt við það sem fastlega er gert ráð fyrir að samkeppnisyfirvöld í Bretlandi heimili keðjunni að kaupa á grundvelli samkeppnissjónarmiða. Asda er næststærsta smásölukeðja Bretlands á eftir Tesco.
Samkvæmt heimildum Dow Jones-fréttaveitunnar, sem Wall Street Journal vísar í, er Asda nú í viðræðum við Bain Capital og BC Partners um að sameinast um tilboð í Iceland Food.
Bankarnir UBS og Bank of America Merrill Lynch (BAC) hafa umsjón með útboðinu á hlut íslensku bankanna í Iceland Food. Er gert ráð fyrir að fjárfestar eigi eftir að bjóða 1,5 milljarða punda í hlutinn en öðrum hluta útboðsferlisins lýkur væntanlega í lok janúar.
Aðrir sem hafa verið nefndir sem mögulegir tilboðsgjafar eru Blackstone Group og Wm. Morrison Supermarkets. Morrison er fjórða stærsta smásölukeðja Bretlands og með mun minni markaðshlutdeild en Asda og gæti því boðið í allar verslanir Iceland Food án afskipta breskra samkeppnisyfirvalda.
Malcolm Walker, stofnandi Iceland Food og forstjóri, er líka talinn ætla að bjóða í hlut bankanna en hann fer fyrir hópi stjórnenda Iceland Food sem á 23% hlut í keðjunni. Sá hópur er með forkaupsrétt á hlut bankanna.



















