Vilja skoða söluna á FIH
Fjárlaganefnd Alþingis íhugar að yfirfara ákvæði samnings, sem gerður var um sölu danska bankans FIH Erhvervsbank til lífeyrissjóðsins ATP og fleiri fjárfesta. Verður Már Guðmundsson, seðlabankastjóri, hugsanlega kallaður fyrir nefndina vegna þessa.
Þetta kemur fram í viðtali Bloomberg-fréttastofunnar við Sigríði Ingibjörgu Ingadóttur, formann fjármálanefndar. Er þar haft eftir Sigríði, að fjárlaganefndin íhugi að leita skýringa hjá Má á því hvers vegna útlit sé fyrir að mun minna skili sér af söluverðinu til íslenska ríkisins en útlit var fyrir þegar samningurinn var gerður.
„Það eru gríðarlegir hagsmunir í húfi fyrir íslenska ríkið,“ segir Sigríður Ingibjörg við Bloomberg. Fjárlaganefnd kunni að þurfa að leggja mat á hvort Seðlabankinn eigi að grípa til ráðstafana til að tryggja hagsmuni bankans og íslenska ríkisins.
Seðlabankinn var með allsherjarveð í tæplega 99% hlutafjár FIH eftir að hafa veitt Kaupþingi 500 milljóna evra þrautavaralán á haustmánuðum 2008. Skilanefnd Kaupþings og Seðlabankinn seldu danska bankann síðan haustið 2010 til dönsku lífeyrissjóðanna ATP og PFA, sænska tryggingafyrirtækisins Folksam og fyrirtækisins CPDyvig í september í fyrra fyrir 5 milljarða danska króna, um 103 milljarða króna á þáverandi gengi.
Hluti kaupverðsins, 1,9 milljarðar danskra króna, var greiddur við kaupin en afganginn átti að greiða á fjórum árum. Sú upphæð verður þó leiðrétt með tilliti til þess taps sem FIH verður fyrir vegna eigna á efnahagsreikningi bankans á tímabilinu.
FIH banki tilkynnti í nóvember, að hann hefði lækkað lánabók sína um 19% á fyrstu mánuðum ársins 2011. Danskir fjölmiðlar höfðu þá eftir Lars Rohde, forstjóra ATP, að líklega myndi þetta leiða til þess að greiðslurnar til Íslands myndu lækka vegna ákvæðisins í kaupsamningnum um útlánatapið.
Sigríður Ingibjörg segir, að fjárlaganefnd verði að ganga úr skugga um að aðgerðir danska bankans séu í samræmi við ákvæði kaupsamningsins og hvort hægt hefði verið að sjá þetta fyrir þegar samningurinn var gerður.



















