Slitnar upp úr viðræðum um skuldir Grikkja
Lucas Papademos, forsætisráðherra Grikklands, og Evangelos Venizelos, fjármálaráðherra, í dag. Reuters
Slitnað hefur upp úr viðræðum milli Grikkja og stórra lánardrottna gríska ríkisins um afskriftir lána.
Alþjóðafjármálastofnunin, IIF, sem tók þátt í viðræðunum fyrir hönd stórra alþjóðlegra banka, segir að ekki hafi náðst samkomulag um þá tillögu, sem lá fyrir, að bankarnir afskrifuðu helming lána til gríska ríkisins. Í því fælist að skuldir Grikklands myndu minnka um 100 milljarða evra.
Charles Dallara, framkvæmdastjóri IIF, og Jean Lemierre, forstjóri franska bankans PNP Paribas, tóku þátt í viðræðunum fyrir hönd lánastofnana og Lucas Papademos, forsætisráðherra, og Evangelos Venizelos, fjármálaráðherra, fyrir hönd grískra stjórnvalda.
Fyrr í dag sögðu grísk stjórnvöld, að viðræðurnar gætu haldið áfram í næstu viku en yfirlýsingar bankamannanna eru mun neikvæðari.



















