Viðskipti
| AFP
| 13.1.2012
| 11:13
| Uppfært
14:22
Tilboðum fyrir 4,75 milljarða evra tekið
Ítalska ríkið safnaði 4,75 milljörðum evra í skuldabréfaútboði í dag og í flestum tilvikum er ávöxtunarkrafan lægri en í síðustu útboðum.
Tekið var tilboðum í skuldabréf til tæplega þriggja ára fyrir þrjá milljarða evra. Ávöxtunarkrafan er 4,83%, mun lægri en í síðasta sambærilega útboði í síðasta mánuði en þá var ávöxtunarkrafan 5,62%.
Skuldabréf sem greidd verða upp í júlí 2014 eru með ávöxtunarkröfunni 4,29% og skuldabréf til sex ára eru á ávöxtunarkröfunni 5,75%. Í því tilviki er ávöxtunarkrafan hærri en í sambærilegu útboði í október er ávöxtunarkrafan var 5,62%.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















