Viðskipti
| AFP
| 13.1.2012
| 15:42
Útlit fyrir lækkun hjá S&P
Matsfyrirtækið Standard & Poor's hefur ákveðið að lækka lánshæfiseinkunn Frakklands en í dag er franska ríkið með hæstu einkunn hjá S&P, AAA. AFP fréttastofan hefur þetta eftir heimildum úr stjórnkerfi Evrópusambandsins.
Aftur á móti verður einkunn Þýskalands, Belgíu, Lúxemborgar og Hollands ekki lækkuð nú. Matsfyrirtækið Fitch greindi frá því fyrr í vikunni að ekki væri útlit fyrir að fyrirtækið myndi lækka lánshæfiseinkunn franska ríkisins á árinu.
Þýskaland, Holland og Lúxemborg eru einnig með AAA lánshæfiseinkunn hjá S&P en Belgía heldur lægri eða AA.
Gengi evrunnar lækkaði verulega vegna fregna um að S&P ætlaði að lækka einkunn Frakklands en það hefur ekki fengist staðfest hjá S&P að fyrirtækið hafi ákveðið að lækka lánshæfiseinkunnina.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















