Íbúðalánasjóður lækkar vexti

Íbúðalánasjóður hefur í kjölfar útboðs á íbúðabréfum ákveðið að lækka útlánavexti sjóðsins. Útlánavextir íbúðalána með uppgreiðsluákvæði verða 4,20%  (voru 4,40%) og 4,70% á íbúðalánum án uppgreiðsluákvæðis (voru 4,90%). 

Vaxtaákvörðunin tekur gildi í dag, 17. janúar 2012. Samkvæmt lögum um húsnæðismál og reglugerð um ÍLS-veðbréf og íbúðabréf getur stjórn Íbúðalánasjóðs ákvarðað vexti ÍLS-veðbréfa með hliðsjón af fjármögnunarkostnaði í reglulegum útboðum íbúðabréfa og með vegnum fjármagnskostnaði vegna uppgreiddra lána, að viðbættu vaxtaálagi.

Vaxtaákvörðun Íbúðalánasjóðs byggist á ávöxtunarkröfu í útboði íbúðabréfa sem haldið var 16. janúar sl. ásamt vegnum fjármagnskostnaði uppgreiðslna ÍLS-veðbréfa. Vegnir vextir í útboðinu og uppgreiddra ÍLS-bréfa eru 3,31%. Vaxtaálag vegna rekstrar er 0,45%, vegna útlánaáhættu 0,45% og vegna uppgreiðsluáhættu 0,50%.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK