Viðskipti
| AFP
| 18.1.2012
| 8:50
| Uppfært
19:36
Engin hætta á lækkun hjá Þýskalandi
Engin hætta er á að lánshæfiseinkunn Þýskalands verði lækkuð en þýska ríkið er með hæstu einkunn, AAA. Þýska blaðið hefur þetta eftir Moritz Krämer, sem hefur umsjón með lánshæfiseinkunnum ríkja Evrópu hjá Standard and Poor's.
Krämer segir að þrátt fyrir niðursveiflu í efnahagslífinu sé staða Þýskalands það sterk að nánast útilokað sé að einkunn þýska ríkisins lækki.
Á föstudag lækkaði S&P lánshæfiseinkunn níu ríkja innan Evrópusambandsins. Af evru-ríkjunum eru einungis Þýskaland, Holland, Finnland og Lúxemborg með hæstu einkunn hjá matsfyrirtækinu.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















