Viðskipti
| mbl
| 19.1.2012
| 9:38
Fitch kann að lækka einkunn sex evruríkja
Hugsanlegt er að alþjóðlega matsfyrirtækið Fitch lækki lánshæfiseinkunn sex evruríkja um eitt eða tvö stig í lok þessa mánaðar. Þetta sagði Edward Parker, framkvæmdastjóri fyrirtækisins, í gær samkvæmt fréttasíðunni Euobserver.com.
Fram kemur að Fitch hafi þegar sett Spán, Ítalíu, Írland, Kýpur, Belgíu og Slóveníu á skoðunarlista í desember.
Hins vegar hefur komið fram að Fitch hafi ekki í hyggju að lækka lánshæfiseinkunn Frakklands en landið hefur nú hæstu einkunn hjá fyrirtækinu.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















