Viðskipti
| AFP
| 19.1.2012
| 10:31
| Uppfært
11:22
Lántökukostnaður lækkar í útboði
Franska ríkið tók tilboðum fyrir 7,965 milljarða evra í skuldabréfaútboði sem fram fór í dag. Er ávöxtunarkrafan lægri en í síðasta sambærilega útboði franska ríkisins.
Fjármálamarkaðir fylgdust grannt með útboðinu enda fyrsta skuldabréfaútboð franska ríkisins frá því matsfyrirtækið Standard & Poor's lækkaði lánshæfiseinkunn Frakklands.
Um er að ræða skuldabréf til tveggja ára og er ávöxtunarkrafan 1,05% samanborið við 1,58% í útboði sem fram fór í október.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















