Viðskipti
| mbl
| 21.1.2012
| 16:53
| Uppfært
22.1.2012
20:07
Flökt á fjármálamörkuðum
Fjármálamarkaðir um allan heim hafa beðið í ofvæni eftir uppgjöri stóru fyrirtækjanna og niðurstöðum úr skuldaviðræðum í Grikklandi. Bæði Google og General Electric skiluðu minni hagnaði en búist var við en að sama skapi var hagnaður tölvurisana IBM, Microsoft og Intel umfram vonir markaðarins.
Enn er töluverð óvissa á evrusvæðinu og óttast margir fjárfestar að skuldakreppan í Grikklandi sé ekki einsdæmi en bent hefur verið á að skuldir Ítalíu séu töluvert miklar og lánakostnaður ítalska ríkisins sé mjög hár um þessar mundir.
Í Bandaríkjunum hefur það verið helst gróði tölvufyrirtækja sem komið hefur í veg fyrir niðursveiflu á mörkuðum í vikunni.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















