FIH krefur fyrrverandi viðskiptavini um fé
Danski bankinn FIH Erhvervsbank, sem áður var í eigu Kaupþings, hefur á síðustu mánuðum sagt upp lánum, sem fasteignafélög tóku hjá bankanum. Að auki krefir bankinn félögin um háar fjárhæðir vegna svonefndrar vaxtatryggingar.
Seðlabankinn var með allsherjarveð í hlutabréfum FIH vegna láns sem Kaupþing fékk rétt áður en bankinn féll. Kaupþing og Seðlabankinn seldu danska bankann undir lok ársins 2010.
FIH tilkynnti í nóvember að hann hefði lækkað lánabók sína um 19% á fyrstu mánuðum ársins 2011 með því að segja upp lánum danskra fasteignafélaga. Fram kemur á vef danska blaðsins Jyllands-Posten að nú hafi þessi fasteignafélög sum hver að auki fengið háa reikninga frá bankanum vegna uppgjörs á samningum um vaxtatryggingu.
Jyllands-Posten hefur eftir talsmönnum fasteignafélaga að þetta auki enn á erfiðleika félaganna, sem eiga mörg í erfiðleikum vegna lækkandi fasteignaverðs. Hætta sé á að einhver félög muni riða til falls vegna fjárkrafnanna.



















