Viðskipti
| AFP
| 24.1.2012
| 11:39
| Uppfært
14:16
Lántökukostnaður Spánar lækkar
Lántökukostnaður spænska ríkisins lækkaði umtalsvert í útboði á ríkisskuldabréfum í morgun og var mikil umfram eftirspurn eftir bréfunum.
Spænska ríkið tók tilboðum fyrir 2.507 milljónir evra en um var að ræða skuldabréf til þriggja og sex mánaða.
Alls voru lögð fram tilboð fyrir 13,6 milljarða evra. Ávöxtunarkrafan á þriggja mánaða bréf er 1,285% sem er lægsta krafan á slík bréf frá því í mars í fyrra. Í síðasta útboði, þann 20. desember sl., var ávöxtunarkrafan 1,735%. Ávöxtunarkrafan á sex mánaða bréf er 1,847% samanborið við 2,435% í síðasta útboði á ríkisbréfum til sex mánaða.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















