Viðskipti
| AFP
| 24.1.2012
| 8:40
| Uppfært
9:30
Mikil lækkun í Frankfurt
Allar helstu hlutabréfavísitölur í Evrópu hafa lækkað frá því viðskipti hófust í kauphöllum Evrópu klukkan 8 í morgun. Í Frankfurt hefur DAX-vísitalan lækkað um 1%.
Í París hefur CAC 40-vísitalan lækkað um 0,51% og í Lundúnum hefur FTSE 100-vísitalan lækkað um 0,61%.
Fjármálaráðherrar evrusvæðisins þrýsta nú á grísk stjórnvöld að undirbúa frekari niðurskurð á fjárlögum og hvetja þau til að ná samkomulagi við fjármálastofnanir um afskriftir eins fljótt og auðið er.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















