Norwegian kaupir 222 flugvélar

Norska lággjaldaflugfélagið Norvegian hefur pantað 122 Boeing 737 og 100 Airbus A320 flugvélar fyrir alls 127 milljarða norskra króna, 2.680 milljarða íslenskra króna.

Bjørn Kjos, forstjóri félagsins, segir að þetta sé stærsta pöntun, sem evrópskt flugfélag hafi nokkru sinni gert en verið er að þrefalda flugvélaflota Norwegian.

Norwegian hefur að auki gert samning um kauprétt á 150 flugvélum frá báðum framleiðendum.  

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK