33.000 viðskiptavinir fá afslátt

Arion banki. stækka

Arion banki. mbl.is/Ómar

Skilvísir einstaklingar í viðskiptum við Arion banka munu á morgun, föstudaginn 27. janúar, fá sérstakan afslátt af greiðslum síðasta árs vegna lána þeirra hjá bankanum. Bankinn segir í tilkynningu, að upphæð sem nemi afslættinum verði lögð inn á reikning þeirra hjá Arion banka.  

„Að langstærstum hluta er um að ræða afslátt vegna íbúðalána. Nemur afslátturinn tveimur gjalddögum síðasta árs miðað við að 12 gjalddagar hafi verið greiddir, eða 16,7% af greiddum gjalddögum. Einnig er veittur 30% afsláttur af vaxtagreiðslum síðasta árs vegna yfirdráttarlána,“ segir bankinn.

„Frá því Arion banki var stofnaður hafa aðgerðir bankans fyrst og fremst beinst að þeim hópi viðskiptavina sem glímt hefur við mestan greiðslu- og skuldavanda. Því átaki fer að ljúka og þar með verða ákveðin kaflaskil í starfsemi bankans. Aðgerðin nú er annars eðlis og snertir alla skilvísa lánþega bankans. Hún kemur í kjölfar yfirtöku bankans á lánasafni þrotabús Kaupþings.“

Þá segir að að meðaltali nemi greiðsla vegna íbúðalána 125 þúsund krónum og greiðsla vegna yfirdráttalána 13 þúsund krónum. Samtals fái um 33 þúsund viðskiptavina bankans greitt til baka frá Arion banka á morgun.

Er kostnaður vegna þessa áætlaður um 2,5 milljarðar króna. Þar með sé kostnaður bankans vegna aðgerða er snúi að einstaklingum og heimilum orðinn rúmir 40 milljarðar króna sem sé rúmum 5 milljörðum umfram það svigrúm bankans sem hafi skapast við yfirtöku lánanna.

„Við sem störfum hjá Arion banka höfum undanfarin ár eða frá stofnun bankans fyrst og fremst beint sjónum okkar að úrlausnarmálum viðskiptavina sem glímt hafa við hvað mestan fjárhagsvanda, ásamt því að byggja upp nýjan og traustan banka. Þar hefur umtalsverður árangur náðst. Nýverið tók svo bankinn yfir íbúðalánasafn sem verið hafði í eigu þrotabús Kaupþings og fékk þar með fullt forræði yfir lánasafninu. Hvort tveggja markar ákveðin kaflaskil. Því viljum við nota tækifærið og sýna skilvísum viðskiptavinum okkar þennan þakklætisvott fyrir samstarfið á undanförnum þremur árum,“ segir Höskuldur H. Ólafsson, bankastjóri Arion banka, í tilkynningunni.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Viðskipti »

Frá kauphöllinni í Frankfurt í dag

Hlutabréf lækka en evran hækkar

15:30 Hlutabréfavísitölur í Evrópu og Bandaríkjunum hafa lækkað í dag en evran hefur styrkst gagnvart Bandaríkjadal.   Meira »
Atvinnuleysi fer minnkandi í Bandaríkjunum

Vinnumarkaður að rétta úr kútnum

15:25 Litlar breytingar urðu á nýjum umsóknum um atvinnuleysisbótum í Bandaríkjunum í síðustu viku og bendir allt til þess að vinnumarkaðurinn sé hægt og bítandi að rétta úr kútnum þar í landi. Meira »

Norska krónan styrkist enn

Norskar krónur.
15:07 Norska krónan hefur verið að styrkjast síðustu misseri og hefur ekki verið sterkari gagnvart evru í níu ár.  Meira »

Ný efnahagslægð á leiðinni

Olli Rehn.
14:59 Skuldakreppan á evru-svæðinu mun draga svæðið niður í nýja efnahagslægð í ár, líkt og lengi hefur verið spáð. Flest nágrannaríkin, sem ekki eru með evruna, munu fara sömu leið, samkvæmt nýrri spá Evrópusambandsins. Meira »

Marel greiðir 6,9 milljónir evra í arð

Marel
14:36 Stjórn Marels leggur til að greiddur verði út arður til hluthafa vegna reikningsársins 2011 sem nemur 0,95 evru sentum á hlut, en slík arðgreiðsla samsvarar u.þ.b. 20% af hagnaði ársins. Fyrirhuguð heildararðgreiðsla nemur um 6,9 milljónum evra, 1.144 milljónir króna. Meira »

Óbreytt mat hjá Moody's

Stjórnarráð Íslands.
14:23 Matsfyrirtækið Moody's hefur birt álit á lánshæfi íslenska ríkisins. Lánshæfiseinkunnir ríkissjóðs eru óbreyttar, Baa3 fyrir langtímaskuldbindingar og P-3 fyrir skammtímaskuldbindingar. Horfur eru áfram neikvæðar. Meira »

Rammagerðin opnar verslun á Akureyri

Lovísa Óladóttir framkvæmdastjóri og Halla Sigbjörnsdóttir verslunarstjóri.
15:03 Gjafavöruverslunin Rammagerðin opnaði í dag, 23. febrúar, nýja verslun á Akureyri. Verslunin er í endurgerðu húsi, Hamborg, að Hafnarstræti 94 á Akureyri. Meira »

Ekki spurning um hvort heldur hvenær

Seðlabanki Íslands
14:40 Greiningardeild Arion banka telur að stutt sé í næstu vaxtahækkun Seðlabanka Íslands en í fundargerð peningastefnunefndar frá síðustu vaxtaákvörðun þann 8. febrúar kemur fram að tveir af fimm nefndarmönnum töldu að hækka ætti vexti. Meira »

Færir Advania forystu?

Afkoma Landsnets versnar milli ára

14:32 Hagnaður Landsnets hf. samkvæmt rekstrarreikningi nam 840 milljónum króna árið 2011 samanborið 3.563 milljón króna hagnað á árinu 2010. Meira »

Íslenskir lífeyrissjóðir með verstu ávöxtun innan OECD

11:05 Ávöxtun íslenskra lífeyrissjóða var umtalsvert verri á árunum 2008-2010 en annarra lífeyrissjóða í OECD. Á þessu árabili skiluðu íslenskir lífeyrissjóðir 8,4% neikvæðri ávöxtun, en lífeyrissjóðir í OECD skiluðu að meðaltali 1,4% neikvæðri ávöxtun. Meira »

Færir Advania forystu? myndskeið

Alkemistinn mbl 45 Advania
09:29 Nokkur umræða hefur verið síðustu vikur, sérstaklega á samfélagsmiðlum um nýtt nafn Skýrr eða nafnið Advania. Fljótlega eftir að nafnið var kynnt fóru af stað vangaveltur um að latnesk merking orðanna „Ad vania“ væri „til einskis“ og var Google Translate skrifað fyrir þeirri þýðingu. Meira »

DataMarket á Bandaríkjamarkað

Hjálmar Gíslason: „ Við stefnum á rétt tæplega 180 milljónir króna í tekjur á þessu ...
11:31 Gagnavinnslufyrirtækið DataMarket hefur undanfarið einbeitt sér að Bandaríkjamarkaði og hefur nú lokið mikilvægum samningum þar og náð í öfluga samstarfsaðila. Meira »

SFO bað Tchenguiz afsökunar

Vincent Tchenguiz.
09:42 Breska efnahagsbrotadeildin, Serious Fraud Office (SFO), hefur sent formlegt bréf til breska kaupsýslumannsins Vincent Tchenguiz, þar beðist er afsökunar á mistökum sem gerð hafi verið þegar hann var handtekinn í mars í fyrra í tengslum við rannsókn á Kaupþingi. Meira »

Loka Apótekaranum á Akranesi

Apótek Vesturlands er orðið eitt á lyfjamarkaði á Akranesi.
08:27 Lyfjaverslun Lyf og heilsa hefur ákveðið að loka lyfjaversluninni Apótekarinn á Akranesi þann fyrsta mars. Apótekið hefur verið opið í verslanamiðstöðinni á Dalbraut 1 frá því Lyf og heilsa lokaði lyfjaverslun við Kirkjubraut á sínum tíma. Meira »

Svipaðar fréttir

Mynt Fjárhæð Mynt Fjárhæð
ISK -   ISK USD - Bandaríkjadalur  USD
EUR - Evra  EUR GBP - Sterlingspund  GBP
CAD - Kanadadalur  CAD DKK - Dönsk króna  DKK
NOK - Norsk króna  NOK SEK - Sænsk króna  SEK
CHF - Svissneskur franki  CHF JPY - Japanskt jen  JPY
Gengi gjaldmiðla

Guðmundur um markaðsmál

mynd Ogilvy um prentauglýsingar.
David Ogilvy er oft kallaður faðir nútíma auglýsingamennsku. Hér verða skoðanir hans á því hvernig hægt er að ná hámarks árangri með prentauglýsingum Meira

finnur.is

Erlendar viðskiptafréttir