Bankastjóri RBS fær vænan bónus

Royal Bank of Scotland stækka

Royal Bank of Scotland Reuters

Stjórn breska bankans Royal Bank of Scotland verðlaunaði bankastjóra bankans rausnarlega í gær með því að greiða honum 963 þúsund pund, 186 milljónir króna, í kaupauka fyrir síðasta ár. Bætist þetta við laun hans á síðasta ári sem námu 1,2 milljónum punda.

Þrátt fyrir að stjórnvöld í Bretlandi, en RBS var bjargað frá gjaldþroti árið 2008 af ríkinu, hafi lagst gegn því að bankinn greiddi háa kaupauka ákvað stjórnin að greiða Stephen Hester fjárhæðina. Hins vegar er þetta miklu minna en hann fékk greitt í kaupauka á síðasta ári.

Breska ríkið á 83% hlut í RBS eftir að ríkið kom bankanum til bjargar. Fyrr í mánuðinum lofaði David Cameron forsætisráðherra skattgreiðendum því að bónus Hesters yrði mun minni í ár en í fyrra. 

Stjórn RBS varði í dag ákvörðun sína um greiðsluna til Hesters með því að greiðslan endurspeglaði framfarir sem orðið hefðu í rekstri bankans. Hester bæri enga ábyrgð á því að bankinn fór í þrot og þurfti á ríkisbjörgun að halda árið 2008.

Þingmenn Verkamannaflokksins hafa harðlega gagnrýnt bónusgreiðsluna í dag á sama tíma og ríkið boðar niðurskurð sem bitnar á breskum almenningi. RBS hefur þurft að segja upp tæplega 34 þúsund starfsmönnum frá því bankanum var bjargað í október 2008.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Viðskipti »

Skuldakreppan á borð G20

19:54 Fjármálaráðherrar G-20 ríkjanna (20 helstu iðnríkja heims) og seðlabankastjórar munu koma saman á fundi í Mexíkóborg um helgina og ræða skuldakreppuna á evrusvæðinu. Meira »
Lestur blaða hefur að miklu leyti færst yfir í rafrænt form.

Gannett rukkar fyrir lestur á netinu

19:29 Gannett, stærsta dagblaðaútgáfa Bandaríkjanna, ætlar að krefja lesendur dagblaða í eigu útgáfunnar fyrir lestur á fréttum blaðanna á netinu. Um áttatíu dagblöð eru í eigu Gannett og þarf að greiða fyrir lestur þeirra allra fyrir utan USA Today. Meira »

Skapar 20.600 störf

18:48 Efnahagslegur ábati af flugtengdri starfsemi á Íslandi er margháttaður. Þannig skapar atvinnugreinin alls um 20.600 störf og þjóðhagsleg áhrif á verga landsframleiðslu eru kringum 12,9%. Meira »

Valitor fær aðgang að upplýsingum

16:40 Hæstiréttur hefur staðfest dóm Héraðsdóms Reykjavíkur sem felldi úr gildi úrskurð áfrýjunarnefndar samkeppnismála um að neita Valitor um aðgang að upplýsingum um nöfn og verð í kvörtun Borgunar hf. Meira »

Afleit afkoma RBS

Royal Bank of Scotland (RBS)
15:32 Tap breska bankans Royal Bank of Scotland nam 1,99 milljörðum punda, 389,40 milljörðum króna, á síðasta ári.   Meira »

Vinnumarkaður að rétta úr kútnum

Atvinnuleysi fer minnkandi í Bandaríkjunum
15:25 Litlar breytingar urðu á nýjum umsóknum um atvinnuleysisbótum í Bandaríkjunum í síðustu viku og bendir allt til þess að vinnumarkaðurinn sé hægt og bítandi að rétta úr kútnum þar í landi. Meira »

Niðurfærsla samþykkt

Gríðarleg óánægja er með fyrirhugaðan niðurskurð í Grikklandi og mótmæli daglegt brauð við þinghúsið í ...
16:55 Gríska þingið samþykkti í dag frumvarp til laga um að heimila niðurfærslu 107 milljarða evra af skuldum ríkissjóðs hjá bönkum og fjármálastofnunum. Meira »

Viðskiptavinir Nova ánægðastir

Fulltrúar fyrirtækja sem mældust hæst í Íslensku ánægjuvoginni.
15:49 Viðskiptavinir Nova eru ánægðastir samkvæmt Íslensku ánægjuvoginni 2011. Fékk fyrirtækið 73,3 stig af 100 möguleikum í mælingunni. Í fyrsta sæti í flokki banka er Íslandsbanki og í flokki tryggingafélaga er Tryggingamiðstöðin með hæstu einkunnina. Meira »

Færir Advania forystu?

Hlutabréf lækka en evran hækkar

Frá kauphöllinni í Frankfurt í dag
15:30 Hlutabréfavísitölur í Evrópu og Bandaríkjunum hafa lækkað í dag en evran hefur styrkst gagnvart Bandaríkjadal.   Meira »

Rammagerðin opnar verslun á Akureyri

Lovísa Óladóttir framkvæmdastjóri og Halla Sigbjörnsdóttir verslunarstjóri.
15:03 Gjafavöruverslunin Rammagerðin opnaði í dag, 23. febrúar, nýja verslun á Akureyri. Verslunin er í endurgerðu húsi, Hamborg, að Hafnarstræti 94 á Akureyri. Meira »

Ekki spurning um hvort heldur hvenær

Seðlabanki Íslands
14:40 Greiningardeild Arion banka telur að stutt sé í næstu vaxtahækkun Seðlabanka Íslands en í fundargerð peningastefnunefndar frá síðustu vaxtaákvörðun þann 8. febrúar kemur fram að tveir af fimm nefndarmönnum töldu að hækka ætti vexti. Meira »

Norska krónan styrkist enn

Norskar krónur.
15:07 Norska krónan hefur verið að styrkjast síðustu misseri og hefur ekki verið sterkari gagnvart evru í níu ár.  Meira »

Ný efnahagslægð á leiðinni

Olli Rehn.
14:59 Skuldakreppan á evru-svæðinu mun draga svæðið niður í nýja efnahagslægð í ár, líkt og lengi hefur verið spáð. Flest nágrannaríkin, sem ekki eru með evruna, munu fara sömu leið, samkvæmt nýrri spá Evrópusambandsins. Meira »

Marel greiðir 6,9 milljónir evra í arð

Marel
14:36 Stjórn Marels leggur til að greiddur verði út arður til hluthafa vegna reikningsársins 2011 sem nemur 0,95 evru sentum á hlut, en slík arðgreiðsla samsvarar u.þ.b. 20% af hagnaði ársins. Fyrirhuguð heildararðgreiðsla nemur um 6,9 milljónum evra, 1.144 milljónir króna. Meira »

Svipaðar fréttir

Mynt Fjárhæð Mynt Fjárhæð
ISK -   ISK USD - Bandaríkjadalur  USD
EUR - Evra  EUR GBP - Sterlingspund  GBP
CAD - Kanadadalur  CAD DKK - Dönsk króna  DKK
NOK - Norsk króna  NOK SEK - Sænsk króna  SEK
CHF - Svissneskur franki  CHF JPY - Japanskt jen  JPY
Gengi gjaldmiðla

Guðmundur um markaðsmál

mynd Ogilvy um prentauglýsingar.
David Ogilvy er oft kallaður faðir nútíma auglýsingamennsku. Hér verða skoðanir hans á því hvernig hægt er að ná hámarks árangri með prentauglýsingum Meira

finnur.is

Erlendar viðskiptafréttir