Hagar beita ofríki á markaði
Una SighvatsdóttirÓmar Valdimarsson, framkvæmdastjóri Samkaupa, segir að íslenskur dagvörumarkaður einkennist af ofríki og yfirráðum eins aðila, sem sé með yfirburðastöðu og beiti henni fyrir sig bæði gegn smærri verslunum og gegn birgjum.
Hagar eru með langstærsta hlutdeild á dagvörumarkaði, eða um 50% að mati Samkeppniseftirlitsins. Séu tvær næstu stærstu verslunarsamstæður taldar með, Kaupás og Samkaup, eru þar um 90% af íslenskum dagvörumarkaði.
Ómar flutti erindi á ráðstefnu Samkeppniseftirlitsins um verðþróun og samkeppni á dagvörumarkaði og sagði það rangt þegar því sé haldið fram að þessi staða sé sambærileg við nágrannalönd okkar, þar sem nokkrar samstæður séu mikla markaðshlutdeild, því staðan hér byggi á því að stærsti aðilinn, Hagar, sé mun stærri en næstu tveir sem á eftir koma.
Stóru keðjurnar bæði verð- og eftirspurnarmyndandi
„Ef um væri að ræða þrjá aðila með álíka stóra hlutdeild á markaði væri það forsenda til samkeppni,“ segir Ómar. Þær forsendur séu hinsvegar ekki til staðar, því þar sem einn aðili ráði um helmingi markaðarins sé hann í slíkri stöðu að hann geti ráðið tilveru hinna. Nefndi hann sem dæmi að forsendur þess að nýjar vörur nái fótfestu hér á markaði séu, að koma þeim í sölu hjá stóru keðjunum, eftir það aukist þrýstingur neytenda á þá sem minni eru að bjóða sömu vöru.„Þannig getur stóri aðilinn í raun verið mjög eftirsóknarmyndandi, þetta vita birgjar og nýta sér gjarnan gagnvart minni aðilum,“ segir Ómar.
Hann sagði dæmi um það, að birgjar hafni smærri aðilum um vöru eða þeim sé gert nánast ómögulegt að bjóða í verslunum sínum öflug vörumerki sem eftirspurn sé eftir. Þannig hafi komið upp dæmi þess að þekkt og vinsæl vörumerki hafi nánast verið komin í einkasölu hjá einum aðila. Stóri aðilinn geti líka verið verðmyndandi, t.a.m. með því að auglýsa að hann sé alltaf með lægsta verðið. Verðkannanir tryggi að enginn komist upp með að bjóða lægra verð.
Fjarðarkaup greiði margfalt hærra verð en Bónus
Ómar bent iá að samþjöppun hefði orðið á birgjamarkaði þannig að 4-5 birgjar séu nú áberandi stærstir. Stærri og öflugri birgjar sjái hag sínum betur borgið með samstarfi við stærri aðila heldur en þá minni. Ómar sagði að Samkaup sem er þriðja stærsta verslunarkeðjan með um 22% markaðshlutdeild, hefði reynt og tekist að halda nokkurri samkeppni. Eina leið smærri verslana væri hinsvegar oft að þiggja bara það sem að þeim er rétt.
Ómar sagði að rökin um að stórar keðjur kaupi meira magn og dreifingarkostnaður sé því minni séu ofnotuð. „Eru það boðleg rök að dreifingarkostnaður framleiðanda, sem dreifir sjálfur vörunni, sé tugprósentum hærri til Fjarðarkaupa í Hafnarfirði, en til Bónus í Hafnarfirði?"



















