Viðskipti
| mbl
| 27.1.2012
| 16:31
2,8% hagvöxtur í Bandaríkjunum
Hagvöxtur í Bandaríkjunum á fjórða ársfjórðungi síðasta árs mældist vera 2,8% miðað við sama tímabil árið áður. Þetta segir bandaríska viðskiptaráðuneytið.
Á þriðja ársfjórðungi mældist hagvöxturinn 1,8%. Sérfræðingar voru búnir að spá að hagvöxturinn síðustu þrjá mánuði ársins yrði 3%, að því er breska ríkisútvarpið segir.
Hækkunina má að mestu rekja til þess að fyrirtæki einblíndu á að koma sér upp birgðum í stað þess að selja þær vörur sem þau framleiða. Sérfræðingar telja að fyrirtæki muni ekki halda þessu áfram, og þar af leiðandi muni menn sjá lægri tölur fyrir núverandi ársfjórðung.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















