Ekki létt að koma nýr á markaðinn
Í verslunum Víðis er lögð áhersla á ferska ávexti og kjöt beint frá býli, á lágu verði. Mbl.is/Brynjar Gauti
„Auðvitað er ekki létt fyrir lítinn aðila að fara inn á markað þar sem þessar stóru keðjur eru ráðandi. Við höfum alveg fundið það. Þetta er mikil vinna, en en við verðum bara að standa okkur,“ segir Eiríkur Sigurðsson, eigandi lágverðsverslunarinnar Víðis.
Að mati Samkeppniseftirlitsins er erfitt fyrir nýja aðila að koma inn á dagvörumarkað, þar sem þrjár verslunarsamstæður eru fyrir með 90% markaðshlutdeild. Þar af eru Hagar langstærstir, með rúm 50%, og undantekningalítið njóta þeir bestra kjara hjá birgjum með um 15% lægra verð að jafnaði en smærri verslanir.
Víði, nýjustu viðbótinni á þessum markaði, hefur þrátt fyrir þetta farnast vel síðan fyrsta verslunin var opnuð í Skeifunni fyrir um hálfu ári. Önnur verslun hefur verið opnuð við Garðatorg í Garðabæ og Eiríkur segir alveg ljóst að Víðisverslanirnar verði fleiri með tíð og tíma. Hann skýrir velgengnina m.a. með því að Víðir hafi fyllt upp í ákveðið gat sem var á markaðnum.
Djörf ákvörðun
„Við töldum vanta þessa tegund búða. Verslanir voru að mínu mati orðnar allt of einhæfar svo við ákváðum að fara aðra leið og það hefur komið í ljós að kúnninn virðist mjög ánægður með það, því við höfum fengið gífurlega góðar móttökur.“ Þannig sé Víðir lágverðsverslun, en býður lengri afgreiðslutíma, gott vöruval og meiri þjónustu en aðrar sem staðsetji sig sem slíkar á markaðnum.
„Það er vissulega djörf ákvörðun að fara inn á þennan markað, en við erum samhentur hópur og með mikla reynslu.“ Eiríkur þekkir markaðinn vel og stofnaði m.a. 10-11 á sínum tíma, en sagði skilið við verslunarrekstur um tíma þegar hann seldi keðjuna til Baugs árið 1999. Á þeim rúma áratug sem liðinn er síðan hefur hlutur lágverðsverslana aukist úr um 20% í 63% skv. skýrslu Samkeppniseftirlitsins.
Aðspurður hvernig markaðurinn horfi við honum eftir 10 ára hlé segist Eiríkur ekki síst merkja breytingu í neyslumunstri fólks. Meira sé t.d. keypt af kjúklingi, ávöxtum og grænmeti. Þá hafi orðið mikil samþjöppun meðal heildsala og þeim fækkað. „En samkeppnin er gríðarlega mikil, ég finn hana bæði hjá framleiðendum og heildsölum.“
Fá ekki bestu kjörin
Hann játar því að kjörin sem birgjarnir bjóði séu misjöfn og stundum þurfi að selja vörur með tapi ef ætlunin er að bjóða jafnlágt verð og Bónus. „Við vitum alveg að við fáum ekki besta innkaupsverðið, við gerum okkur grein fyrir því, en við reynum að berjast og fá sem best verð.“
Á móti reyni Víðir líka að bjóða upp á eitthvað annað og marka sér sérstöðu. „Við höfum til dæmis verið mjög opin fyrir því að opna leiðir fyrir einyrkja, sem hafa ekki komið vörunum sínum til stóru keðjanna. Ef varan kemst ekki þar inn er hún nánast dauðadæmd en við höfum verið tilbúin að taka þeim opnum örmum, enda eru frábærar framleiðsluvörur á Íslandi sem við fáum í mörgum tilfellum beint frá býli. Við komum ný inn og ákváðum að vera opin fyrir öllu.“



















