Gift til rannsóknar
Embætti sérstaks saksóknara rannsakar nú hvort Gift fjárfestingarfélag hafi fengið óeðlilega fyrirgreiðslu hjá Kaupþingi fyrir hrun, en félagið var meðal stærstu hluthafa bankans. Rannsókn starfsmanna endurskoðunarfyrirtækisins PWC er meðal þeirra gagna sem liggja til grundvallar í málinu, samkvæmt frétt Stöðvar 2 í kvöld.
Í skýrslu sem starfsmenn endurskoðunarfyrirtækisins PWC unnu fyrir slitastjórn Kaupþings var farið rækilega yfir ýmsa þætti í starfsemi félagins, en þau gögn sem slitastjórn lét taka saman eru komin í hendur sérstaks saksóknara.
Þar á meðal eru viðskiptagjörningar síðasta árið fyrir hrun Kaupþings, en hagsmunir Giftar voru samtvinnaðir bankanum með ýmsum hætti. Þannig var Gift meðal stærstu hluthafa Kaupþings við fall hans með 3,4 prósenta hlut og meðal stærstu eigenda Exista, sem átti fjórðungshlut í Kaupþingi, sem jafnframt var stærsti viðskiptabanki Giftar.



















